Gusurnar
Fjörugusa
Fjörugusan er meira en bara sánaferð. Þetta er lítið ferðalag fyrir líkama og sál, í stórbrotnu umhverfi við sjávarsíðuna, þar sem náttúra, ró og góð stemning mætast.
Við bjóðum upp á einstaka upplifun fyrir gesti sem vilja slaka á, hlaða batteríin og kynnast vaxandi sánamenningu heimamanna á Ísafirði. Hér spilar allt saman: hiti og kuldi, ilmur, tónlist og kyrrðin í fjörunni.
Ævintýrið hefst í notalegri viðarsánu við sjóinn. Þú stígur inn, finnur birkiilminn og leyfir hitanum að vinna sitt. Við hitum okkur vel í um 15 mínútur í leiðsögn sánameistara sem sér til þess að allir njóti upplifunarinnar og líði vel.
Síðan tökum við stutt hlé úti í svala og ferska loftinu – og fyrir þá sem vilja er sjórinn aðeins örfá skref í burtu. Margir velja að kæla sig í sjónum, aðrir njóta þess einfaldlega að standa úti og anda að sér fjörunni.
Þessi hringur er endurtekinn nokkrum sinnum, með góðu flæði og nægum tíma til að koma sér í takt við upplifunina. Allt ferðalagið tekur um það bil eina og hálfa klukkustund.
Komdu ein/n, með vinum eða í hóp og leyfðu Fjörugusunni að skila þér léttari, rólegri og ljómandi… bæði að innan og utan.
Fjörugusa stendur við gömlu dráttarbrautina í neðstakaupstað, bak við upplýsingamiðstöð ferðamanna og byggðarsafnið.
Staðsetning: Neðstikaupstaður á Suðurtanga
Lengd gusu: 1,5 klst
Innifalið: Sánahattur og millimál (döðlur, kartöfluflögur, ávextir og vatn)
Ekki innifalið: Búningsklefi og sturtuaðstaða.
