Hugmyndir sem spretta af vináttu, áhuga og ástríðu fyrir heimabyggð geta orðið að einhverju einstöku. Þannig kviknaði draumur tveggja vinahjóna á Ísafirði: að skapa rými þar sem fólk gæti slakað á, tengst náttúrunni og upplifað jafnvægi, hita og kulda á fallegasta stað bæjarins. Ástríða okkar fyrir andlegum málefnum, vellíðan og samfélaginu var kveikjan að þessu öllu. Ferðalagið hefur verið bæði krefjandi og skemmtilegt; að smíða gusu sem sameinar hita, kulda, ilm og tónlist í einni nærandi upplifun.
Markmiðið er að bjóða bæði heimafólki og gestum upp á nýja og fjölbreytta leið til að njóta Ísafjarðar og þeirra einstöku náttúruafla sem umlykja bæinn.
Okkar draumur er að styrkja afþreyingu í nærumhverfinu, gefa bænum okkar eitthvað nýtt og fallegt – og skapa stað þar sem lífið hægir á sér. Þetta þarf ekki að vera flókið, bara anda djúpt og njóta Vestfjarða af innlifun- við sjáum um rest.
Halldór Karl Valsson, Svanlaug Björg Másdóttir, Sólveig Erlingsdóttir og Sveinberg Þór Birgisson